Líf í borgarholtsskóla

29/04/2026 | Ritstjórn

Geðræktarfyrirlestur

Heðinn Unnsteinsson fræðir nemendur um geðrækt

Heðinn Unnsteinsson fræðir nemendur um geðrækt

Í dag fengu nemendur í lífsleikni frábæra heimsókn frá Geðhjálp. Héðinn Unnsteinsson kom og ræddi um geðheilsu og geðheilbrigði.

Um geðfræðsluna:

Góð geðheilsa er undirstaða lífsgæða og lífsánægju. Geðheilbrigði er ekki aðeins það að vera laus við geðraskanir heldur ástand þar sem okkur líður vel, getum nýtt hæfileika okkar til fulls, tekist farsællega á við verkefni daglegs lífs og átt uppbyggileg og ánægjuleg samskipti við fólkið í kringum okkur.

Mikilvægt er að hlúa að eigin geðheilsu með því að gæta að jafnvægi í lífinu – nærast vel, stunda daglega hreyfingu og útiveru, hvílast nægilega og gefa sér tíma til þess að njóta tilverunnar með þeim sem manni þykir vænt um.

Með því að tileinka þér að hugsa jákvætt um lífið og tilveruna og hlúa markvisst að því sem styrkir geðheilsu þá ertu að stunda geðrækt.

Lífsorðin 14:

Lífsorðin 14 eru sprottin úr hugarheimi Héðins Unnsteinssonar, sérfræðings í stefnumótun og kunnáttumanns um geðheilbrigði. Hann hefur m.a. starfað sem sérfræðingur í þeim málum hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) og heilbrigðisráðuneytinu. Í fyrirlestrinum ræddi Héðinn lífsorðin 14 og sagði nemendum sögur ásamt því að velta fyrir sér hvað skiptir í raun máli. Lífsorðin eru byggð á persónulegri reynslu en rannsóknir staðfesta gildi þeirra.

Héðinn hefur unnið lengi að því að finna leið til að tala um geðheilbrigði án þess að það verði þungt eða fjarlægt. Leið til að opna samtal sem er hlýtt, hreinskilið og mannlegt. Úr því varð fyrirlesturinn Vertu Úlfur – Wargus Esto. Tilbrigði við geðheilbrigði en Héðinn er einnig höfundur bókarinnar „Vertu úlfur – wargus esto“.

Fyrirlesturinn féll í afar frjóan jarðveg en stór hópur nemenda í lífsleikni hlustuðu á Héðin og fengu hjá honum innsýn í geðheilsu og -heilbrigði ásamt góðum ráðum til að njóta lífsins í jafnvægi og vellíðan.