11/11/2026 | Ritstjórn
Gjafmildi Össurar

Ýmis mælitæki voru í pakkanum frá Össuri
Enn og aftur berst skólanum höfðingleg gjöf. Í gær komu tveir nemendur í kvöldskólanum færandi hendi með gjafir frá vinnuveitanda sínum. Þeir stunda nám hjá Sveinbjörgu Ásgeirsdóttur á málm- og véltæknibraut en vinna auk þess hjá fyrirtækinu Össuri ehf. Þar á bæ lá fjöldinn allur af ónotuðum mælitækjum. Sveinbjörg hafði rætt við nemendurna um að skólinn gæti notað tækin og gjöfin varð að veruleika. Þetta er mjög vegleg gjöf en verðmæti gjafarinnar er yfir milljón krónur.
Össur er fyrirtæki í hátækniiðnaði en í þeim geira þarf að yfirfara öll mælitæki árlega. Þau mælitæki sem standast ekki þær miklu kröfur sem gerðar eru til mælitækja við slíkar aðstæður eru umsvifalaust tekin úr notkun þó skekkjan sé einungis nokkrir hundraðshlutar úr millimeter. Skekkjan er þó það lítil að tækin eru vel nothæf við nám og kennslu. Þessi mælitæki munu nýtast vel, bæði á renniverkstæðinu og í vélfræðinni.
Þetta er frábært framtak hjá Sveinbjörgu og nemendunum hennar og við þökkum Össuri kærlega fyrir gjafmildina.

