15/04/2026 | Ritstjórn
Gróska í kvikmyndagerð

Inga Malen með aðalverðlaunin (mynd frá Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna)
Í síðasta mánuði var haldin kvikmyndahátíð framhaldsskólanna. Þar sópuðu nemendur skólans að sér verðlaunum svo eftir var tekið.
Besta mynd hátíðarinnar var valin myndin Kítl eftir Ingu Malen Andersen en hún útskrifaðist frá skólanum á síðasta ári. Myndin hennar fékk einnig áhorfendaverðlaun sunnudags og verðlaun fyrir bestu tæknilegu útfærsluna. Ísak Magnússon fékk verðlaun fyrir bestu myndatökuna á sömu mynd en hann útskrifaðist árið 2024. Einnig var Indriði Elvar Magnússon verðlaunaður fyrir bestu tónlistina í stuttmynd sinni, Kyrrðin blíður, en hann er á öðru ári í skólanum. Báðar myndirnar voru sýndar á Stockfish kvikmyndahátíðinni í mars.
Mikil gróska er á kvikmyndabraut skólans og bæði núverandi og fyrrverandi nemendur gera garðinn frægan. Sem dæmi um gott gengi útskrifaðra nemenda má nefna að Orri Guðmundsson var verðlaunaður á Stockfish fyrir myndina Íslenskur Herkúles. Loks ber að nefna myndina Ferlið hans Bubba en fyrrverandi nemandi skólans, Halldór Ísak Ólafsson, er meðal framleiðenda hennar.

Mynd frá Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna

Mynd frá Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna

