03/09/2026 | Ritstjórn
Hann á afmæli í dag

Það er bjart yfir afmælisbarninu
Í dag er mikill hátíðisdagur en haldið er upp á að kennsla hófst í Borgarholtsskóla þann 2. september 1996. Skólinn á því þrjátíu ára starfsafmæli.
Margt hefur breyst frá þessum fyrsta starfsdegi skólans og til vitnis um það má nefna að í ár var fyrsti kennsludagur þann 19. ágúst. Skólaárið hefur því lengst töluvert og skipulag námsins tekið stakkaskiptum. Lesa má brot úr sögu skólans hér.
Í dag voru fjórir merkismenn heiðraðir fyrir að hafa starfað við skólann frá fyrsta degi. Það voru þeir Bjarni Jóhannsson, íþróttakennari, Egill Þór Magnússon, kennari í málmiðngreinum, Óttar Ólafsson, náttúrufræðikennari og Guðmundur Þórhallsson, stærðfræðikennari sem mættu til kennslu í dag rétt eins og fyrsta kennsludag skólans fyrir þrjátíu árum síðan. Þeir eru sannarlega góður vitnisburður um að það er engin leið að hætta í Borgó. Hinn sístækkandi og glæsilegi kór skólans flutti ljúfa tóna við undirleik Anton Más, Theódórs og Guðbjargar sem stjórnar kórnum og að sjálfsögðu tóku öll viðstödd vel undir afmælissönginn. Eins og í öllum almennilegum afmælisveislum gæddu gestir sér síðan á ljúffengri afmælisköku og ískaldri mjólk.
Áframhaldandi hátíðahöld eru sannarlega tilhlökkunarefni og afmælisbarnið ber aldurinn einstaklega vel.

Það er alltaf gaman í Borgó

Ásta Laufey afhenti fjórmenningunum blómvendi

Fulltrúar nemendafélagsins skammta kökuna

Gjörðu svo vel

Kórinn vex og dafnar með hverju ári

Undirleikararnir og stjórnandi kórsins baðaðir birtu

