Líf í borgarholtsskóla

11/11/2026 | Ritstjórn

Heimur í orðum

Kynning á Konungsbók eddukvæða

Kynning á Konungsbók eddukvæða

Nemendur í íslensku 2B05 fóru á dögunum á sýninguna Heimur í orðum í Eddu, húsi íslenskunnar, með kennaranum sínum, Guðrúnu Guðjónsdóttur. Í áfanganum læra nemendur um íslenskar fornbókmenntir og lesa Snorra-Eddu, Völuspá og Hávamál svo þau eru vel undirbúin undir sýninguna.

Fyrir sýninguna fræddi Marta Guðrún Jóhannesdóttir safnkennari nemendur um sögu handritanna, varðveislu þeirra og gerð. Nokkur handrit eru til sýnis í glerskápum, enda miklir dýrgripir, en auk þeirra býður sýningin upp á fjölbreyttan fróðleik varðandi líf og störf, lög og reglur og átrúnað Íslendinga á miðöldum.

Sýningin mæltist vel fyrir hjá hópnum og sögðust þau hafa lært mikið um sögu og menningu þjóðarinnar. Þau skemmtu sér vel við að skoða, hlusta og fikta ásamt því að spreyta sig á að lesa handritin.

Hér fylgja nokkur ummæli nemendanna:

„Mér fannst þetta áhugavert og skemmtilegt, það var gaman að sjá handritin og allt sem var hægt að fikta í. Þetta var skemmtileg og upplýsandi upplifun.“

„Þetta var frekar fínt. Það sem var merkilegt var hversu vel gerður salurinn er fyrir þessa sögu og hreyfimyndirnar voru flottar.“

„Mér fannst áhugavert að koma hingað. Það var mjög áhugavert að heyra í öllum vísunum sem voru lesnar upp og sönginn.“

„Nokkrir hlutir sem mér fannst áhugavert er hvað fólk var vant að endurnýta gömul handrit meira en að varðveita þau. Það var líka áhugavert að það var Íslendingur sem safnaði handritunum og að mörg handrit voru gefin til danska konungsins sem gjöf.“

„Þessi sýning var mjög flott og ég fékk að heyra allskonar hluti sem ég vissi ekki áður eins og hluti um líkamann og tilfinningar, lög og margt fleira. Mér fannst líka „pappírinn“ sem þau notuðu vera kúl, áferðin á honum var eins og neglur.“

„Mér fannst áhugavert hvernig handritunum er skipt út á 3 mánaða fresti og að byggingin lýsist upp í myrkri.“