15/10/2026 | Ritstjórn
Íslenskt-franskt samstarf

Hópurinn blandast vel saman
Á dögunum heimsóttu nemendur og kennarar frá Dijon í Frakklandi okkur í Borgó. Þórdís Anna, sögukennari, og Dóa Dagný, enskukennari, tóku á móti hópnum og kynntu skólann. Frönsku nemendurnir sátu tíma í byrjunaráfanga í ensku og þar fengu þau kynningu á landi og þjóð sem íslensku nemendurnir höfðu undirbúið af þessu tilefni.
Verkefnið er gott dæmi um hagnýtt viðfangsefni sem nemendur beggja landa höfðu mikið gagn og gleði af. Heimsóknin tókst afar vel og undirstrikar enn og aftur mikilvægi samskipta ólíkra þjóða í námi og starfi.

Gagn og gaman í skólastofunni

Öll vinna saman

Íslandskynning

Borðleggjandi samstarf

Þórdís og Dóa ásamt frönskum kollegum

