25/08/2026 | Ritstjórn
JÁ eða NEI?

Frummælendur ásamt öðrum af tveimur fundarstjórum
Í dag fengu bæði JÁ- og NEI-sinnar tækifæri til að kynna málstað sinn fyrir nemendum og starfsfólki skólans. Þeir Helgi Hrafn Gunnarson og Steinar Ingi Kolbeins tóku að sér að vera fulltrúar sitthvorrar fylkingarinnar og fengu þeir sínar átta mínúturnar hvor til að fara yfir rök sín í málinu. Að framsögum loknum fengu fundargestir tækifæri til að spyrja þá félagana út í málflutninginn og spurðu nemendur þá krefjandi spurninga sem þeir svöruðu eftir bestu getu.
Fá þeir Helgi og Steinar bestu þakkir fyrir upplýsandi málflutning og nemendur hrós fyrir skynsamlegar spurningar. Eins fá þau Hanna Björg og Guðmundur Edgarsson, kennarar við skólann, hrós og þakkir fyrir sköruglega fundarstjórn.

Helgi Hrafn segir JÁ

Steinar Ingi segir NEI

Nemandi spyr JÁ og NEI menn krefjandi spurningar

