06/03/2026 | Ritstjórn
Keppni lokið í Gettu betur

óhann Fróði Ársælsson, Daníel Orri Gunnarsson og Júlía Kristín Eyþórsdóttir kepptu í átta liða úrslitum í Gettu betur
Lið Borgarholtsskóla í spurningakeppninni Gettu betur komst í átta liða úrslit keppninnar en sú umferð fer fram í sjónvarpi. Í gærkvöldi atti liðið kappi við lið Menntaskólans á Egilsstöðum og lauk þeirri viðureign því miður með ósigri okkar fólks. Engu að síður hafa þau Jóhann Fróði Ársælsson, Daníel Orri Gunnarsson og Júlía Kristín Eyþórsdóttir verið skólanum til sóma og eiga skilið hrós fyrir mikla eljusemi og glæsilega frammistöðu. Nokkuð er síðan lið skólans náði svona langt í keppninni og er liðinu óskað innilega til hamingju með árangurinn.

