11/11/2026 | Ritstjórn
Leikhúsferð í lífsleikni

Fullur salur af lífsleikninemendum
Allir nemendur í lífsleikniáföngum og SNS (sem stendur fyrir Skapandi nám og starf) gerðu sér ferð í Þjóðleikhúsið á mánudag og sáu leikritið Gæðablóð. Leikararnir Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson semja leikritið ásamt leikstjóranum Þóru Karitas Árnadóttur. Verkið byggir á reynslu leikaranna þriggja sem eiga það sameiginlegt að rekja rætur sínar til fjarlægra heimsálfa. Þeir segja frá því hvernig er að vera hörundsdökkur á Íslandi og blanda gamansemi við alvarlegar frásagnir af lífsreynslu sinni.
Sýningin er lærdómsrík en um leið skemmtileg og voru nemendur afar sáttir með leikhúsferðina.

