Líf í borgarholtsskóla

06/11/2026 | Ritstjórn

Listunnendur í Ásmundarsal

Afar listræn uppstilling: nemendur, kennarar og listamaður

Afar listræn uppstilling: nemendur, kennarar og listamaður

Þriðja árs nemendur í grafískri hönnun heimsóttu á mánudaginn sýningu Guðjóns Ketilssonar í Ásmundarsal. Það var Ragnhildur Ragnarsdóttir, kennari í grafískri miðlun, sem sá um skipulagningu og framkvæmd en auk hennar fór kennaraneminn Arnar Geir Ómarsson með hópnum á safnið. Sýningin ber titilinn Spor og sá listamaðurinn sjálfur um leiðsögn.

Verkin eru þrenns konar. Flest eru einhvers konar letur-listaverk þar sem handskrifaður textamassi sem inniheldur skrásetningu á hugsunum listamannsins fyllir myndflötinn. Þetta eru stór verk á striga þar sem hugsanir sem flæða í gegnum um hugann á þeim tíma sem verkin eru unnin eru skrásettar. Á sýningunni eru einnig tíu verk þar sem fingraför allra fingra listamannsins standa saman sem eitt verk. Í þeim skoðar hann sjálfið, hver hann er, hvaðan hann kemur o.s.frv. Að lokum eru sýndar innsetningar á hversdagslegum hlutum sem listamaðurinn finnur í nærumhverfinu; fundnir hlutir sem öðlast nýja nærveru og annað hlutverk.

Á heimasíðu Myndlistarmiðstöðvar segir að sameiginlegur kjarni verkanna felist í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilji eftir sig ummerki.

Mæltist sýningin vel fyrir og minntust þátttakendur sérstaklega á hversu góð innsýn fengist í hugarheim listamannsins í gegnum leiðsögn hans.