16/10/2026 | Ritstjórn
Lýðræðisfundur

Nemendur ræða málin
Lýðræðisfundur nemenda er einn af föstu liðunum í skólastarfinu í Borgó. Einu sinni á skólaári hittast nemendur í matsal skólans og ræða málefni skólans frá ýmsum sjónarhornum.
Í dag söfnuðust nemendur saman til slíkrar samræðu. Þátttaka var góð og gekk vinna hópanna ljómandi vel. Kennarar tóku að sér að vera borðstjórar og áttu nemendur góðar samræður um fjögur málefni:
- Námið og námsumhverfið
-
- Hvernig er skólastofan?
- Hvernig eru kennslustundir og kennsluhættir?
- Er eitthvað sem mætti vera betra?
- Birtingarmynd skólans
-
- Hvernig birtist skólinn okkar á samfélagsmiðlum?
- Er sú mynd rétt?
- Hvernig getum við haft áhrif?
- Skólabragur
-
- Hvernig er félagslífið?
- Hvernig eru samskipti og líðan hér í skólanum, bæði nemenda og starfsfólks?
Fjórða verkefnið var svo tengt gervigreindinni. Notast var við nýútkomið spil sem ætlað er framhaldsskólanemum og er hannað til að vekja fólk til umhugsunar um notkun gervigreindar í námi. Hóparnir fengu ólíkar spurningar þessu tengdar og tíma til að ræða spurningarnar og gera atlögu að svörum við þeim.
Í framhaldinu verða svör hópanna greind og munu stjórnendur skólans gera það sem í þeirra valdi stendur til að gera hugmyndir nemenda að veruleika. Oft hafa góðar hugmyndir sprottið upp úr lýðræðisfundunum og vonandi verður svo áfram.

Fulltrúi hópsins kynnir niðurstöður

Góða þátttaka var í samtalinu

Einbeittur fulltrúi hóps síns

Líflegt samtal um mikilvæg mál

Flottur hópur nemenda á ýmsum brautum

