26/03/2026 | Ritstjórn
Skólahaldi frestað vegna veðurs

Lægð yfir landinu
Í ljósi þess að óveðursspár virðast ætla að ganga eftir færist skólahald yfir á Innu fram að hádegi og þar gefa kennarar fyrirmæli um hvernig nemendur geta best varið tíma sínum í viðkomandi áfanga. Ekki er gert ráð fyrir netkennslu, hver kennari ákveður hvernig tími nemenda nýtist sem best.
Kennarar setja tilkynningu inn á Innu og nemendur bera ábyrgð á að fylgjast með.
Annað starfsfólk vinnur fjarvinnu eftir því sem við á og mögulegt er.
Gert er ráð fyrir að kennsla hefjist kl. 13.15 en nemendur fá tölvupóst um hádegi með nánari tilmælum.

