Líf í borgarholtsskóla

01/05/2026 | Ritstjórn

Skuggakosningar í skólanum

Arnar Steinn stjórnaði pallborðsumræðum með glæsibrag

Arnar Steinn stjórnaði pallborðsumræðum með glæsibrag

Í vikunni hefur mikið verið um að vera í tengslum við væntanlegar sveitastjórnarkosningar þann 16. maí. Á mánudaginn komu fulltrúar flestra stjórnmálaflokka og ræddu við nemendur í pallborði í matsalnum. Nemendum bauðst að senda inn spurningar um það sem helst brennur þeim í brjósti fyrir fram og voru  umræður mjög líflegar.

Á miðvikudaginn voru svo haldnar skuggakosningar en þar gafst nemendum sem fæddir eru 2004 eða síðar tækifæri til að æfa sig í lýðræðislegri þátttöku og kynnast kosningaferlinu áður en alvaran tekur við. Kjörstaðir voru tveir í skólanum, í bóknámshluta og verknámi. Formaður kjörstjórnar var Arnar Steinn Þórarinsson, væntanlegur formaður nemendaráðs, en hann stjórnaði einnig pallborðsumræðunum af mikilli röggsemi. Í kjörnefnd sátu Emma Lind Aðalsteinsdóttir, Friðfinnur Sölvi Hrefnuson, Hilmar Elías Hermannsson, Indriði Elvar Magnússon, Kolbrún Klara Vikarsdóttir, Refur Leó Ólafsson og Særún Georgsdóttir. Stóðu þau sig með miklum sóma og eiga mikið hrós skilið fyrir einstaklega sköruglega framgöngu. Kennarar sem voru krökkunum innan handar við framkvæmdina voru Guðbjörg Hilmarsdóttir og Flosi Jón Ófeigsson.

Á kjörskrá voru 851 nemandi en einungis 85 nýttu kosningarétt sinn. Það er því ljóst að þrátt fyrir framúrskarandi framgöngu kjörstjórnar er margt óunnið við að virkja nemendur okkar til lýðræðisþátttöku.