22/09/2026 | Ritstjórn
Sveinsprófi í vélvirkjun lokið

Þessi náði!
Um helgina var haldið sveinspróf í vélvirkjun í málmskálanum. Að þessu sinni þreyttu 22 nemar prófið en sjaldan eða aldrei hafa jafn margir tekið prófið hjá okkur. Flestum gekk vel og stóðust prófið en eins og stundum gerist þurfa einhverjir að koma og taka hluta þess aftur.
Tilvonandi nýsveinum er óskað bjartrar framtíðar og til hamingju með prófið.

Allt þarf að passa í vélarnar

Alls konar græjur prófaðar

Sumt er svolítið skrýtið

Hér er allt á huldu

Eins gott að vanda sig

