Líf í borgarholtsskóla

02/10/2026 | Ritstjórn

Þrjátíu ára blómatími

Í vikunni mynduðu nemendur og starfsfólk aldur skólans á bílastæðinu

Í vikunni mynduðu nemendur og starfsfólk aldur skólans á bílastæðinu

Í gær var þrjátíu ára afmæli skólans fagnað með pompi og prakt. Skólinn var settur í fyrsta sinn þann 2. september 1996 og hefur hann vaxið, dafnað og stækkað síðan þá. Á afmælisdeginum sjálfum var nemendum boðið upp á súkkulaðiköku og mjólk en nú var komið að sérstökum boðsgestum, núverandi og fyrrverandi starfsfólki skólans, forseta Íslands, barna- og menntamálaráðherra, forseta borgarstjórnar auk sérstakra velunnara skólans.

Skólahljómsveit Mosfellsbæjar lék við innganginn þegar gestir streymdu inn. Dagskráin hófst á því að boðið var upp á skoðunarferð um skólann og mæltist hún mjög vel fyrir enda skólinn skínandi bjartur og aðstaðan til fyrirmyndar.

Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, skólameistari, setti athöfn í sal skólans og fór yfir sögu hans. Hún minntist á að þegar hún kom fyrst í skólann sem kennaranemi fyrir 27 árum heillaðist hún svo af gróskunni og lifandi kennsluaðferðunum að upp frá því hafi hún hvergi annars staðar viljað vera. Aðrir ræðumenn töluðu á svipuðum nótum. Halla Tómasdóttir forseti Íslands rifjaði upp heimsókn sína í skólann árið 1999 og voru henni hugleikin einkunnarorð skólans; bókmennt, handmennt og siðmennt sem að hennar mati væru einmitt þau gildi sem nýttust best inn í óvissa framtíð. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lagði áherslu á fjölbreytileikann og þau tækifæri sem skólinn gæfi ólíkum nemendahópum. Björgu Magnúsdóttur, forseti borgarstjórnar, varð tíðrætt um hvað skólinn tæki vel á móti fólki og að Borgóandinn væri sannarlega blómlegur.

Síðustu ræðumenn voru úr hópi nemenda skólans. Arnar Steinn Þórarinsson, formaður Nemendafélags Borgarholtsskóla, var svo sannarlega kynslóð sinni til sóma og flutti eldræðu um mikilvægi þess að hlúa að fjölbreytileikanum og leggja alúð við að bjóða upp á menntun og aðstæður fyrir öll. Það var ekki laust við að nokkur rykkorn hefðu sest í augu viðstaddra þegar Arnar lýsti vellíðan sinni í skólanum og samlíðan með þeim sem berjast þurfa fyrir tilverurétti sínum.  Ræðuhöldum lauk með skemmtilegu erindi frá fyrrverandi nemanda skólans, móður nemanda og núverandi starfsmanni, Guðrúnu Völu Bílddal, en hún var í einum af fyrstu nemendahópunum sem hófu nám í skólanum. Það var hrífandi að ferðast með henni til fyrstu áranna og heyra hvað námið og kennslan í skólanum hefur nýst henni vel í lífi og störfum.

Skemmtiatriði voru fjölbreytt og engum þurfti að leiðast í athöfninni. Kór skólans flutti fjögur lög með liðsstyrk frá kórum frá Þýskalandi og Liechtenstein sem eru í heimsókn þessa viku. Stjórnandi kórsins, Guðbjörg Hilmarsdóttir, hefur unnið gríðarlega gott starf og kórinn vex og dafnar með hverju ári. Um undirleik sáu Ingvar Birnir Grétarsson, kennari við Borgarholtsskóla, Fabian Gedicke frá Þýskalandi og Gregor Vogt frá Liechtenstein.

Félagarnir Júlí Heiðar Halldórsson og Kristmundur Axel Kristmundsson fluttu Komdu til baka, ógleymanlegt sigurlag sitt í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2010. Fullyrða má að ekkert auga í salnum hafi verið þurrt eftir þann gjörning. Strákarnir hafa engu gleymt.

Sýnt var myndband þar sem núverandi nemendur skólans ræddu við valda fyrrverandi nemendur um valið á skólanum og áhrif hans á líf þeirra. Um framkvæmdina sáu Þorgeir Guðmundsson, sem titla má leikstjóra, og Kristín María Ingimarsdóttir, sem sá um grafík, auk fjölda annarra. Áberandi var hvað nemendur fyrr og nú eru þakklátir fyrir það mikla val sem boðið er upp á í skólanum og sveigjanleikann, þar getur hver sem er fundið eitthvað við sitt hæfi og öllum er velkomið að vera nákvæmlega eins og þau eru.

Í lokin var gestum boðið upp á kaffi og snittur og var ekki annað að sjá en að afmælisbarnið bæri aldurinn vel og muni halda áfram að blómstra.