Líf í borgarholtsskóla

13/03/2026 | Ritstjórn

Tjáning gegn hatri

Gagnræðufræðsla frá Samtökunum 78

Gagnræðufræðsla frá Samtökunum 78

Á miðvikudaginn fengu nemendur heimsókn frá Samtökunum 78. Kristmundur Pétursson frá samtökunum flutti fyrirlestur um hugtakið gagnræðu í tilefni af jafnréttisdegi skólans sem er haldinn er í tengslum við alþjóðlegan baráttudag kvenna ár hvert.

Á heimasíðu samtakanna er gagnræða skilgreind sem „…öll tjáning sem miðar að því að minnka áhrif skaðlegrar og hatursfullrar orðræðu á samfélag og einstaklinga. Í reynd felur gagnræða í sér að við tökum þátt í umræðunni með meðvituðum hætti.“

Féll fræðslan í frjóan jarðveg og er enn ein viðbótin við skilning nemenda á ólíkum einstaklingum og hópum í samfélaginu og mikilvægi þess að koma í veg fyrir að hatursorðræða breiðist út.