Líf í borgarholtsskóla

01/05/2026 | Ritstjórn

Út fyrir skólalóðina

Sirkuslistir nemenda slógu í gegn

Sirkuslistir nemenda slógu í gegn

Nemendur og kennarar skólans eru ótrúlega útsjónarsamir í að komast í samstarf við ýmsa aðila utan skólans. Hér eru tvö dæmi um skemmtileg verkefni sem sýna fjölbreytileika skólans vel.

Annars vegar hafa nemendur í áfanganum Heilsa, hreyfing og hreysti (HHH3A05), á Heilsu- og lífsstílsbraut unnið að því á önninni að skipuleggja heilsueflandi viðburð í nærsamfélaginu í samvinnu við samnemendur og valinn markhóp. Verkefnið fólst í því að undirbúa og framkvæma hreyfistundir fyrir leikskólabörn annars vegar og eldri borgara hins vegar.  Verkefnið var unnið í samvinnu við eldri borgara sem stunda hreyfingu hjá „Frísk í Fjölni“ og leikskólann Engjaborg.

Skemmst er frá því að segja að verkefnið gekk mjög vel í alla staði og stóðu nemendur sig frábærlega og voru skólanum öllum til mikils sóma.

Í hinu verkefninu heimsóttu fyrsta árs nemendur í leiklist leikskólann Laufskála í Rimahverfi og sýndu leikskólabörnunum ýmsar sirkuslistir sem þau hafa lært hjá kennurum sínum, Nick Candy og Guðmundi Elíasi í áfanganum LEI2C05 – Sirkus og bardagatækni. Eins og gera má ráð fyrir vakti sýningin stormandi lukku barnanna enda mikið sjónarspil. Þetta er ekki fyrsta sýning þessara nemenda en þau sýndu líka frábæra sirkustæknisýningu í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar á sumardaginn fyrsta.

Þess má geta að nemendur í grafískri hönnun eru einnig að hanna nýtt lógó fyrir leikskólann Laufskála svo það má segja að Borghyltingar komi heilmikið að skólastarfi þessa flotta leikskóla.