06/05/2026 | Ritstjórn
Viðburðaregn í listnámi

Sýning grafískrar hönnunar í Spönginni er tilefni til að vera stolt
Um þessar mundir er mikið um að vera í skólanum. Nemendur eru í óða önn að lesa fyrir síðustu prófin og leggja lokahönd á verkefnin sín. Sum verkefni verða geymd í kolli nemenda og sjást einungis sem einkunn í Innu en önnur eru sýnilegri. Sérstaklega á það við um útskriftarverkefni listnámsbrautarnemenda.
Nemendur og kennarar hafa staðið í ströngu við uppsetningu á lokaverkefni þriðja árs nema á leiklistarkjörsviði. Verkefnið var byggt á söngleiknum Ástin er diskó, lífið er pönk eftir þá Hallgrím Helgason og Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Sögusvið verksins er Reykjavík kringum árið 1980. Diskódrottningin Rósa og pönkarinn Nonni verða ástfangin og þar með mætast tveir menningarheimar og tónlistarstefnur með tilheyrandi hamagangi. Þau frumsýndu söngleikinn Ástin er diskó, lífið er pönk í húsnæði Leikfélags Kópavogs í Funalind við gríðarlegan fögnuð viðstaddra síðasta föstudag en aðgangur var ókeypis þar sem um skólaverkefni er að ræða. Þrjár sýningar voru haldnar um síðustu helgi.
Sýningin var nemendum og kennurum til sóma og ljóst er að mikil vinna hefur farið í undirbúning og uppsetningu. Verkefnið var unnið undir stjórn Guðnýjar Maríu sviðsstjóra auk Guðbjargar söngkennara, Guðmundar hreyfikennara og Evu Bjargar leikmyndakennara á brautinni. Bæði nemendum og kennurum sem komu að sýningu er óskað innilega til hamingju með vel lukkað lokaverkefni. Hér að neðan má sjá myndir af líflegu lokaverkefni leiklistarkjörsviðs.
Útskriftarsýning nemenda í grafískri hönnun verður opnuð í Borgarbókasafninu í Spönginni á morgun, fimmtudag. Hefð hefur skapast fyrir samvinnu bókasafnsins og skólans og njóta verk nemenda sín virkilega vel í húsnæði safnsins. Hægt er að skoða þessara áhugaverðu og metnaðarfullu sýningu til 20. maí.
Síðast en ekki síst verða lokaverkefni nemenda í kvikmyndagerð sýnd í Bíó Paradís á laugardaginn klukkan 13. Nemendur hafa lagt mikið á sig undanfarna mánuði og afraksturinn er 13 stuttmyndir í leikstjórn nemenda. Auk þess að leikstýra og framleiða sínar eigin myndir hjálpa nemendur hverjir öðrum varðandi upptökur, hljóð og fleira.
Það eru spennandi tímar framundan en sýningarnar frá grafískri hönnun og kvikmyndagerð eru opnar öllum sem hafa áhuga á að kynna sér gróskumikið starf á listnámsbrautum skólans.

Leikhópurinn sem stóð að sýningunni Ástin er diskó, lífið er pönk

Rúnturinn var í algleymingi árið 1980

Mikið fjör var á sýningunni

Tónlistin ræður för

Er hægt að sameina diskó og pönk?

Málin rædd árið 1980

Kennarar fengu blóm fyrir vel unnin störf

Allt sem þarf að vita um sýningu grafískrar hönnunar

Fjölbreytt og frumleg verk á sýningu í Spöng

Sýningin í Spönginni er virkilega vel upp sett

Vandvirknin leynir sér ekki

Hver mynd þarf sitt rétta pláss

Verkin eru af ýmsum toga

Allt sem þarf að vita um kvikmyndasýninguna

