Líf í borgarholtsskóla

Bílamálun

Þessi vefsíða er birt með fyrirvara um breytingar þar sem námskráin er enn í vinnslu.

Í bíliðngreinum blandast saman nútíma tölvu- og hátækni og hefðbundið handverk. Fagmenn í greinunum vinna fjölbreytt störf m.a. við viðgerðir, viðhald og nýsmíði bifreiða og vinnuvéla af öllu tagi.

Bílamálari annast undirbúnings hvers kyns ökutækja s.s. fólksbifreiða, vörubifreiða, vinnuvéla fyrir sprautun. Bílamálari sprautar ökutæki samkvæmt fyrirmælum framleiðanda ökutækja og framleiðanda málingar- og fylliefna auk þess að fylgjast með nýjustu tækni í bílamálun. Bílamálari hannar uppdrátt og teiknar merkingar á ökutæki og býr einnig yfir sérþekkingu á efnisfræði og litafræði. Nám í bílamálun veitir nemendum undirbúning undir sérhæfð störf við viðgerðir og viðhald bifreiða. Náminu er einnig ætlað að veita undirbúning undir þátttöku í íslensku samfélagi og frekara nám, sérstaklega á sviði verk- og tæknigreina.

Bílamálari er lögverndað starfsheiti og bílamálun lögvernduð iðngrein.

Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (130 einingum) á tveimur og hálfu námsári. Að þeim tíma loknum tekur við starfþjálfun á vinnumarkaði sem metin er til 45 eininga.

Nemendur geta útskrifast

  •      að loknu starfsnámi,
  •      að loknu starfsnámi og stúdentsprófi,
  •      að loknum öllum fagáföngum (grunnnámi og sérgreinum) í skóla og viðbótaráföngum til stúdentsprófs.

Þær kröfur sem gerðar eru vegna stúdentsprófs eru neðst á síðunni undir fyrirsögninni Viðbótarnám til stúdentsprófs.

Grunnur

Nemendur taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í grunnnámi. Hægt er að velja eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.

Starfsþjálfun

FagÞrep 1Þrep 2Þrep 3Þrep 4
StarfsnámSTI1C10STI2C05STI3C30

Viðbótarnám til stúdentsprófs

Nemendur sem ætla að útskrifast með viðbótarnám til stúdentsprófs þurfa að taka eftirfarandi:

Kjarni

Nemendur þurfa að taka alla áfangana í kjarna.

Bundið áfangaval

Nemendur velja 5 ein í ensku og/eða stærðfræði.
Nemendur velja annað hvort félagsfræði, náttúrufræði eða sögu sem viðbót (5 einingar).

Frjálst val

Nemendur nýta frjálst val til þess að fylla upp í þær 200 einingar sem þarf til stúdentsprófs. Nemendum er bent á að kynna sér vel þær kröfur sem gerðar eru til samsetningar stúdentsprófs í því námi sem stefnt er á í framhaldinu og haga vali á áföngum í samræmi við þær.
Náms- og starfsráðgjafar veita nánari upplýsingar um viðbótarnám til stúdentsprófs.

Athugið að einingar á 1. þrepi mega að hámarki vera 66, einingar á 2. þrepi mega að hámarki vera 100 og einingar á 3. þrepi þurfa að vera að lágmarki 34.

Uppfært: 17/03/2026