
Félagsliðar
Nám fyrir félagsliða veitir undirstöðuþekkingu til að efla lífsgæði einstaklinga sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda. Starfsvettvangur félagsliða spannar vítt svið félagslegrar endurhæfingar og virkniúrræða fyrir þá sem vegna félagslegra aðstæðna, veikinda, öldrunar, þroskaraskana eða hvers kona áfalla, þurfa á sérstökum stuðningi að halda.
Þetta nám er fyrir fólk með starfsreynslu á þessu sviði og er kennt í dreifnámi.
Nemendur velja á milli áherslu á starf með fötluðum eða öldruðum og er námið 196 einingar.
Nemendur geta útskrifast að loknu starfsnámi eða að loknu starfsnámi og stúdentsprófi, sjá Viðbótarnám til stúdentsprófs – starfsnám.
Kjarnagreinar
Nemendur þurfa að taka alla áfangana í kjarnagreinum.
Uppfært: 21/10/2026
