
Námið
Brautarlýsingar
Nemendur geta sótt um nám í íþróttaakademíu sem hluta af námi til stúdentsprófs á bóknámsbrautum. Einingar íþróttaakademíu nýtast að fullu upp í einingafjölda til stúdentsprófs.
Félags- og hugvísindabraut – íþróttaakademía
Heilsu- og lífsstílsbraut – íþróttaakademía
Náttúrufræðibraut – íþróttaakademía
Viðskipta- og frumkvöðlabraut – íþróttaakademía
Alls eru 25 einingar í íþróttaakademíu. Nemendur ljúka 5 einingum á önn í íþróttagrein sinni og akademían samanstendur af 5 áföngum.
Nemandi í íþróttaakademíu tekur alla áfanga þeirrar bóknámsbrautar sem hann er skráður á fyrir utan 9 einingar af kjörsviði sem falla undir íþróttaakademíu. Nemandi nýtir að auki frjálst val sitt (10 einingar) og hinar hefðbundnu einingar fyrir líkams- og heilsurækt (6 einingar), samtals 25 einingar.
Óski nemandi af öðrum brautum eftir því að stunda nám í íþróttaakademíu samhliða sinni braut, er sótt um það í samráði við viðkomandi sviðsstjóra og deildarstjóra íþróttamála. Einingar eru að mestu viðbót við einingafjölda viðkomandi brautar. Hins vegar nýtast þær í stað íþróttaeininga, í frjálst val eða sem valeiningar í viðbótarnámi til stúdentsprófs eftir iðn- og starfsnám.
Líkamleg próf
Í lok hverrar annar fara fram líkamleg próf sem gilda til lokaeinkunnar í áfanganum hjá okkur. Hér að neðan er hægt að sjá nemendur framkvæma prófin í stuttu myndskeiði.
Uppfært: 09/09/2024