Líf í borgarholtsskóla

Blikksmíði

Blikksmiður hannar, velur, sníður og smíðar úr þunnmálmum og íhlutum, eftir eigin teikningum eða annarra. Blikksmiðir starfa hjá framleiðslu-, þjónustu- og verktakafyrirtækjum. Blikksmiður er lögverndað starfsheiti og blikksmíði löggild iðngrein.

Nám í blikksmíði er iðnnám sem á rætur í ævafornum hefðum en byggir engu að síður á nýjustu þekkingu manna í tækni og vísindum. Í blikksmíði vefjast fornar handverkshefðir og vitneskja um eiginleika málma og annarra efna saman við nútíma tölvu- og stýritækni. Náminu er ætlað að búa nemendur undir þátttöku í nútímalegu lýðræðissamfélagi með því að auka hæfni þeirra til gagnrýninnar hugsunar, efla vitund um eigin getu og takmarkanir og styrkja samskiptahæfni og samhug. Auk þess að búa nemendur sem best undir störf og frekara nám er áhersla lögð á að koma til móts við nemendur sem vilja hagnýta menntun sem felur í sér hæfni til starfa sem krefjast nákvæmni, útsjónarsemi, sköpunarhæfni og vandaðs verklags.

Til að geta hafið nám í sérgreinum í blikksmíði þurfa nemendur að ljúka grunnnámi. Gert er ráð fyrir að grunnnáminu megi ljúka á tveimur önnum.

Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (145 einingum) á tveimur og hálfu námsári. Að þeim tíma loknum tekur við vinnustaðanám sem metið er til 60 eininga.

Að þessu námi loknu geta nemendur sótt um og þreytt sveinspróf í blikksmíði sem veitir starfsréttindi í faginu. Sveinsprófið veitir rétt til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs

Nemendur geta útskrifast

Þær kröfur sem gerðar eru vegna stúdentsprófs eru neðst á síðunni undir fyrirsögninni Viðbótarnám til stúdentsprófs

Grunnnám

*Nemendur taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í grunnnámi. Hægt er að velja eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.

Vinnustaðanám

Uppfært: 21/10/2026