Líf í borgarholtsskóla

Vélvirkjun

Markmið náms í vélvirkjun er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem vélvirkjar inna af hendi, þ.e. uppsetningu, viðhaldi, viðgerðum og þjónustu véla og tæknibúnaðar skipa, vinnslustöðva, vinnuvéla, verksmiðja, orkuvera og orkuveitna. Vélvirki er lögverndað starfsheiti og vélvirkjun löggild iðngrein.

Til að geta hafið nám í sérgreinum á málm- og véltæknibrautum (rennismíði, stálsmíði eða vélvirkjun) þurfa nemendur að ljúka grunnnámi. Gert er ráð fyrir að grunnnáminu megi ljúka á tveimur önnum.

Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (160 einingum) á þremur námsárum. Að þeim tíma loknum tekur við vinnustaðanám sem metið er til 80 eininga.

Að þessu námi loknu geta nemendur sótt um og þreytt sveinspróf í vélvirkjun sem veitir starfsréttindi í faginu. Sveinsprófið veitir rétt til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Nemendur geta útskrifast

Þær kröfur sem gerðar eru vegna stúdentsprófs eru neðst á síðunni undir fyrirsögninni Viðbótarnám til stúdentsprófs.

Grunnnám

*Nemendur taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í grunnnámi. Hægt er að velja eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.

Sérgreinar

Uppfært: 21/10/2026