Innritun á haustönn 2026
Byrjar: 20/03/2026
Endar: 10/06/2026
Borgarholtsskóli býður upp á fjölbreytt nám, bóknám, iðn- og starfsnám og listnám.
Spurningar og svör um Borgó og námið þar.
Dagskóli
Innritun eldri nemenda á haustönn 2026 fer fram dagana 13. mars – 26. maí
Innritun nemenda í 10. bekk fer fram 24. apríl – 10. júní.
Innritun fer fram á Ísland.is.
Nám í boði
- Íþróttaakademía *
- Bíltæknibrautir, bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun
- Bóknám, félags- og hugvísindabraut, náttúrufræðibraut, viðskipta- og frumkvöðlabraut
- Framhaldsskólabraut
- Listnám – grafísk hönnun, kvikmyndagerð, leiklist
- Málm- og véltæknibrautir, blikksmíði, rennismíði, stálsmíði, vélvirkjun, pípulagnir
*Nemendur, sem óska eftir að stunda nám í íþróttaakademíu, sækja um skólavist rafrænt eins og aðrir. Því til viðbótar þurfa þeir að sækja um í íþróttaakademíu á sérstöku eyðublaði sem þarf að berast í síðasta lagi 10. júní 2026.
Inntökuskilyrði
Innritunargjöld
Nám með vinnu (dreifnám og kvöldskóli)
Boðið er upp á dreifnám á félagsvirkni- og uppeldissviði og kvöldskóla í málm- og véltæknibrautum. Það nám er hugsað fyrir þá sem eiga þess ekki kost að stunda hefðbundið nám í dagskóla og er því hægt samhliða námi í dreifnámi að stunda vinnu.
Félagsvirkni- og uppeldissvið (dreifnám) – umsóknareyðublað
Búið er að opna fyrir umsóknir um nám á félagsvirkni- og uppeldissviði fyrir haustönn 2026.
Sótt er um námið á rafrænu umsóknareyðublaði.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2026.
Nánari upplýsingar gefur Hermína Huld Hilmarsdóttir, deildarstjóri, hermina.hilmarsdottir@borgo.is
Málm- og véltæknisvið (kvöldskóli) – umsóknareyðublað
Innritun fer fram á rafrænu eyðublaði.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2026.
Nánari upplýsingar veitir Ellert Danelíusson deildarstjóri, ellert.daneliusson@borgo.is

