
Áhugasviðskannanir
Áhugasviðskannanir segja til um hvar áhugasvið fólks liggur og gefur vísbendingar um það á hvaða starfssviði og í hvaða starfi fólki gæti líkað vel að vinna. Þær gefa upplýsingar um áhuga en ekki hæfileika eða getu.
Áhugasviðskannanir eru verkfæri sem auðvelda val á námi, námsbraut, starfi og áhugamálum en þær gefa ekki endanlegt svar. Þegar niðurstöður liggja fyrir tekur við vinna að kanna nám og störf sem henta.
Nemendum skólans gefst kostur á að taka Bendil áhugasviðskönnun hjá náms- og starfsráðgjöfum skólans. Nemendur greiða útlagðan kostnað (leyfisgjöld) sem greidd eru áður en könnun er tekin –
kr. 3.600 krónur.
Það tekur um 30 mínútur að svara könnuninni og niðurstöður koma strax. Niðurstöður gefa vísbendingar sem vinna má með í framhaldinu með náms- og starfsráðgjafa.
Uppfært: 10/02/2023